Scholz vill herða vopnalöggjöf í kjölfar árásar

Frá heimsókn Scholz til Solingen í dag.
Frá heimsókn Scholz til Solingen í dag. AFP/Ina Fassbender

Olaf Scholz, kansl­ari Þýska­lands, heit­ir því að herða lög­gjöf um vopna­b­urð í land­inu og fara í alls­herj­ar átak gegn ólög­leg­um inn­flytj­end­um. 

Þetta seg­ir kansl­ar­inn í kjöl­far þess að sýr­lensk­ur karl­maður, að nafni Issa Al H., játaði að hafa framið hnífa­árás í borg­inni Sol­ingen í Þýskalandi á föstu­dag þar sem þrír lét­ust og átta særðust. 

Maður­inn var ekki und­ir eft­ir­liti

Verknaður­inn hef­ur vakið mikla umræðu um inn­flytj­enda­mál í land­inu en maður­inn er sagður hafa tengsl við Íslamska ríkið.

Ríki íslams hef­ur sagt að árás­in sé „hefnd fyr­ir múslima í Palestínu og alls staðar“, með vís­an í stríðið á Gasa. 

Þá hef­ur íslamsk­ur áróðursmaður ISIS sagt að árás­in hafi verið fram­kvæmd af her­manni Íslamska rík­is­ins. 

Sam­kvæmt þýska miðlin­um Spieg­el á maður­inn að hafa komið til Þýska­lands í des­em­ber árið 2022 og var hann um­sækj­andi um alþjóðlega vernd. Maður­inn var ekki und­ir eft­ir­liti ör­ygg­is­lög­reglu Þýska­lands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert