Harris hyggst loksins mæta í viðtal

Harris mætir í viðtal hjá CNN á fimmtudag.
Harris mætir í viðtal hjá CNN á fimmtudag. AFP/Saul loeb

Kamala Harris forsetaframbjóðandi demókrata hyggst mæta á fimmtudag í sitt fyrsta viðtal frá því hún tilkynnti um framboð sitt fyrir rúmlega fimm vikum.

Mætir hún í viðtalið ásamt varaforsetaefni sínu, Tim Walz.

CNN greinir frá en það er einmitt fréttamaðurinn Dana Bash á CNN sem tekur viðtalið við frambjóðendurna.

Ekki mætt í viðtöl né haldið blaðamannafundi

Þrátt fyrir að fyrstu vikur framboðs hennar hafi gengið vel hefur hún hlotið gagnrýni fyrir að hafa ekki mætt í viðtöl né haldið blaðamannafundi.

Viðtalið á fimmtudaginn uppfyllir loforð sem hún gaf fyrr í mánuðinum um að mæta í viðtal fyrir lok mánaðar.

Á undanförnum vikum hefur hún svarað fáeinum spurningum frá blaðamönnum á leið sinni á viðburði eða upp í flugvél, en hún hefur ekki mætt í formlegt viðtal. Þó hefur hún spjallað í þrígang við áhrifavalda þar sem hún svarar spurningum þeirra.

Til stendur að Harris mæti Donald Trump forsetaframbjóðanda repúblikana í kappræðum 10. september á ABC News. 

Harris mætir í viðtalið ásamt Walz.
Harris mætir í viðtalið ásamt Walz. AFP/Kamil Krzaczynski
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert