Aðdáendur heimsfrægu söngkonunnar Taylor Swift, sem kalla sig Swifties, hafa safnað yfir 140 þúsund dollurum, eða rúmlega 20 milljónum íslenskra króna, til að styðja við framboð Kamölu Harris í forsetakosningunum í Bandaríkjunum.
Hópurinn kallar sig „Swifties for Harris“ og á rætur sínar að rekja til samfélagsmiðlahreyfingar sem hófst eftir að Joe Biden Bandaríkjaforseti dró framboð sitt til baka.
Hreyfingin hefur vaxið hratt og telur nú yfir 72 þúsund notendur á X og tæplega 50 þúsund á Instagram.
Taylor Swift sjálf er þó ekki persónulega tengd hópnum.
Hópurinn hélt fjáröflun á fjarfundi sem 27 þúsund manns lögðu lið. Markmiðið með fundinum var að breyta „Swiftie kraftinum í pólitískan kraft“, eins og pólitískur framkvæmdastjóri hópsins orðaði það.
Á fundinum komu fram stjörnur á borð við Carole King, ásamt öldungadeildarþingmönnunum Elizabeth Warren og Kirsten Gillibrand.