Ný ákæra á hendur Weinstein

Weinstein fyrir dómi í New York í júlí síðastliðnum.
Weinstein fyrir dómi í New York í júlí síðastliðnum. AFP/Kena Betancur

Ný ákæra hef­ur verið gef­in út á hend­ur kvik­mynda­fram­leiðand­an­um fyrr­ver­andi Har­vey Wein­stein.

Banda­rísk­ir fjöl­miðlar greindu frá þessu í dag en aðeins nokkr­ir dag­ar eru liðnir síðan hann gekkst und­ir bráðahjartaaðgerð.

Að sögn New York Post og New York Times til­kynnti sak­sókn­ari í Man­hatt­an í New York um þess­ar nýju ásak­an­ir, sem ekki hafa verið birt­ar op­in­ber­lega, fyr­ir dóm­stóli.

Wein­stein var ekki viðstadd­ur. Dóm­ar­inn sagði hann þurfa að mæta fyr­ir dóm 18. sept­em­ber ef heilsa hans leyf­ir.

Weinsein fyrir rétti fyrir fjórum árum.
Wein­sein fyr­ir rétti fyr­ir fjór­um árum. AFP/​Ang­ela Weiss

Ekki í lífs­hættu

Wein­stein var flutt­ur með skyndi á sjúkra­hús á mánu­dag­inn. Talskona hans, Juda Eng­elmayer, sagði við AFP að hann væri „slapp­ur“ en „ekki leng­ur í hættu“.   

Lögmaður Wein­steins, Arth­ur Ai­dala, sagði við dóm­stól­inn í dag að skjól­stæðing­ur sinn hefði „næst­um því dáið“.

Wein­stein er 72 ára gam­all og var dæmd­ur sek­ur af dóm­stóli í New York fyr­ir nauðgun og kyn­ferðisof­beldi gegn leik­kon­unni Jessicu Mann árið 2013 og fyr­ir að hafa kyn­ferðis­lega áreitt aðstoðar­kon­una Mimi Haleyi árið 2006. Hann hlaut 23 ára dóm fyr­ir brot­in.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert