Ánægð að frétta að Trump væri óhultur

Kamala Harris og Joe Biden.
Kamala Harris og Joe Biden. AFP/Drew Angerer

Joe Biden Bandaríkjaforseti og Kamala Harris varaforseti fundu fyrir létti þegar þar fréttu af því að Donald Trump, forsetaframbjóðandi Repúblikana, væri óhultur eftir að byssuskot heyrðust í nágrenni við hann.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hvíta húsinu.

„Forsetinn og varaforsetinn fengu að vita af því sem gerðist á Trump International-golfvellinum, þar sem Trump, fyrrverandi forseti, var í golfi. Þeim var létt þegar þau fréttu að hann væri óhultur,“ sagði í yfirlýsingunni.

Harris hefur sjálf fordæmt það sem gerðist. „Ofbeldi á ekki að eiga heima í Bandaríkjunum,” sagði hún. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert