Leyniþjónustan skaut á byssumanninn

Ric Bradshaw heldur á ljósmynd af hríðskotabyssunni og fleiri munum …
Ric Bradshaw heldur á ljósmynd af hríðskotabyssunni og fleiri munum sem fundust skammt frá staðnum þar sem byssumaðurinn hafði verið. AFP/Joe Raedle

Bandaríska leyniþjónustan hefur staðfest að einn eða fleiri starfsmenn hennar hefðu „skotið á byssumann sem var staðsettur nálægt jaðri golfvallar Donalds Trump, forsetaframbjóðanda Repúblikana, og að lagt hefði verið hald á hríðskotariffil af gerðinni AK-47 með kíki ásamt GoPro-myndavél.

Sá sem er grunaður um verknaðinn flúði á svörtum bíl en vitni hjálpuðu lögreglunni að finna bílinn. 

Lögreglan lokaði götunni við golfvöll Trumps.
Lögreglan lokaði götunni við golfvöll Trumps. AFP/Chandan Khanna

„Við erum með einn í haldi núna sem er mögulega grunaður í málinu,“ sagði Ric Bradshaw, lögreglustjóri í Palm Beach-sýslu í bandaríska ríkinu Flórída.

Trump hafði verið í golfi á golfvelli sínum í West Palm Beach, ekki langt frá húsi sínu í Mar-a-Lago, þegar atvikið átti sér stað. 

Frá blaðamannfundi vegna atviksins.
Frá blaðamannfundi vegna atviksins. AFP/Joe Raedle
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert