Sænsk glæpagengi færa út kvíarnar

Stjórnandi lögregluaðgerðarinnar Frigg telur glæpagengi frá Stokkhólmi nú færa út …
Stjórnandi lögregluaðgerðarinnar Frigg telur glæpagengi frá Stokkhólmi nú færa út kvíarnar og nema land í Malmö og á Skáni til að festa sig betur í sessi og ná ítökum í Suður-Svíþjóð sem sé ein stór vörumóttaka. Ljósmynd/Wikipedia.org/David Castor

„Þeir sem festa sig í sessi hérna niður frá eru í betri stöðu til að hafa töglin og hagldirnar,“ segir Stefan Sintéus við sænska ríkisútvarpið SVT en hann er fyrrverandi lögreglustjóri í Malmö og nú stjórnandi lögregluaðgerðarinnar Frigg sem beinist gegn skipulagðri glæpastarfsemi.

Ofbeldi með banvænum afleiðingum hefur færst í aukana í Malmö og á Skáni og telur lögregla ástandið sprottið af því að stærri glæpagengi frá höfuðborginni Stokkhólmi hafi fært út kvíarnar og hafið starfsemi á framangreindum stöðum sunnan hennar.

Ein stór vörumóttaka

Frá júlílokum hafa fleiri skotárásir og sprengjutilræði átt sér stað í Malmö og á Skáni og létust fórnarlömb skotárása í Skurup og Rosengård í Malmö með stuttu millibili.

„Afbrotahópar sækjast eftir því að koma sér fyrir í Suður-Svíþjóð vegna nálægðarinnar við meginlandið. Þeir eiga auðveldara með að starfa héðan,“ segir Sintéus af þessum flutningum gengjanna og bendir á að allur suðurhluti landsins sé ein stór vörumóttaka fyrir smyglvarning. Sá sem ráði lögum og lofum þar sé í óskastöðu.

Hann segir lögreglu glöggt sjá þróun í ofbeldismálum á svæðinu upp á síðkastið sem bendi til nýrra manna og nýrrar starfsemi. Ofbeldið hafi orðið grófara og árásarmennirnir yngri en áður tíðkaðist.

SVT

SVT-II (bylgja ofbeldis í Malmö)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert