Greenpeace gagnrýna Norðmenn

Liðsmenn Greenpeace mótmæla í Ottawa í Kanada.
Liðsmenn Greenpeace mótmæla í Ottawa í Kanada. AFP/Dave Chan

Samtökin Greenpeace segja að áform Noregs um að hefja námuvinnslu á djúpum hafsbotni á norðurslóðum muni valda óafturkræfum skaða á öllu vistkerfi sjávar.

Reiknað er með því að Norðmenn veiti fyrsta leyfi til slíkrar vinnslu á næsta ári. Þar með gæti þjóðin orðin ein sú fyrsta í heiminum til að stunda námuvinnslu á djúpum hafsbotni þrátt fyrir mikla gagnrýni vísindamanna, aðgerðasinna og annarra ríkja.

„Námuvinnsla Noregs á djúpum hafsbotni á norðurslóðum mun valda óafturkræfum skaða á líffræðilegri fjölbreytni,“ sagði í nýrri skýrslu Greenpeace um málið.

Fram kemur að námuvinnslan gæti valdið frekari skaða á lítt rannsökuðu vistkerfinu sem hlýnun jarðar ógnar nú þegar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert