Áætlað er að fellibylurinn Helena muni valda gífurlegu tjóni í Flórídaríki er hann nær landi í nótt. Þegar eru 125 þúsund heimili og fyrirtæki án rafmagns. Fellibylurinn gæti orðið einn stærsti fellibylur sem komið hefur frá Mexíkó-flóa síðastliðna áratugi.
Fellibylurinn hefur vaxið í dag og nú er hann orðinn að 4. stigs fellibyl með vindhviður sem ná hátt í 60 metra á sekúndu.
Búist er við miklu tjóni og hefur Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, þegar skipað þúsundum manna í þjóðvarðliðinu að vera búnir undir leit og björgun.
Áætlað er að hann komi að landi klukkan þrjú í nótt að íslenskum tíma.
Búið er að loka flugvöllum í Tampa og Tallahassee og þegar er komið smá flóð á land í St. Petersburg, miðbæ Tampa, Sarasota og Treasure Island.
„Við eigum von á stormi sem nær 15 til 20 metra yfir jörðu,“ sagði Mike Brennan, forstjóri bandarísku fellibyljamiðstöðvarinnar (NHC).
„Þetta nær upp í toppinn á tveggja hæða byggingu. Enn og aftur, ólífvænleg atburðarás mun eiga sér stað hérna á þessum hluta strandlengjunnar í Flórída.“
Flóðbylgjurnar sem munu fylgja fellibylnum geta eyðilagt hús og bíla að hans sögn.