Fellibylurinn Helena: Þrír látnir

Fellibylurinn Helene hefur valdið miklum usla í Flórída.
Fellibylurinn Helene hefur valdið miklum usla í Flórída. JOE RAEDLE

Minnst þrír eru látnir eftir að fellibylurinn Helena gekk á land í Flórídaríki í Bandaríkjunum

Fellibylurinn var 4. stigs fellibylur með vindhviðum sem náðu allt að 60 metrum á sekúndu en hann hefur nú verið færður niður í 2. flokks fellibyl nokkrum klukkustundum eftir að hann skall á suðurausturströnd Bandaríkjanna.

Staðfest er að einn sé látinn í Flórída og tveir í Georgíuríki og hafa ríkisstjórar í sex ríkjum lýst yfir neyðarástandi.

Yfir 1,5 milljón íbúa í ríkjum Flórída og Georgíu eru nú án rafmagns en fellibylurinn er einn sá stærsti sem hefur komið frá Mexíkó-flóa síðastliðna áratugi.

Gríðarlegt vatnsveður hefur fylgt fellibylnum og eru götur og hús á kafi í vatni í mörgum borgum á vesturströnd Flórída.

Fellibylurinn var flokkaður sem 4. stigs fellybylur en er 2. …
Fellibylurinn var flokkaður sem 4. stigs fellybylur en er 2. stigs fellibylur. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert