Talið er að upptök eldsvoðans í Oceana-vatnagarðinum í skemmtigarðinum Liseberg í Svíþjóð í febrúar hafi orðið í plastpípum sem voru festar saman með logsuðu undir vatnsrennibraut.
Þetta eru niðurstöður bráðabirgðaskýrslu sem hefur verið unnin um eldsvoðann. Rannsókn stendur enn yfir á því sem gerðist.
„Rannsóknin sýnir að eldurinn byrjaði líklega í tengslum við þessa vinnu. Eldurinn breiddist síðan út frá pípunum til vatnsrennibrautarinnar og í önnur mannvirki og olli það miklum skemmdum,“ sagði í skýrslunni, að því er kom fram í Aftonbladet.
Patrik Gilholm, 51 árs, sem starfaði sem ráðgjafi í tengslum við byggingu Oceana-vatnagarðsins, lést í eldsvoðanum. Frá árunum 2016 til 2019 sinnti hann starfi verkefnastjóra vegna framkvæmdanna.
Reiknað er með því að rannsókn á því sem gerðist ljúki snemma á næsta ári.