Íranska flugfélagið Iran Air hefur aflýst öllum flugferðum sínum til og frá Beirút, höfuðborg Líbanon.
Þessu greina íranskir fjölmiðlar frá, og segir í fréttum þeirra að ferðum sé aflýst um ókomna tíð.
Ísraelsher hefur gert umfangsmiklar loftárásir á Líbanon síðustu daga.
Heilbrigðisráðuneyti Líbanon greinir frá því að 700 hafi látið lífið í árásunum í þessari viku.
Í gærkvöldi var gerð árás á höfuðstöðvar Hisbollah–samtakanna í Beirút þar sem sex létu lífið, þar á meðal leiðtogi samtakanna.