Segja leiðtoga Hisbollah látinn

Hass­an Nasrallah, leiðtogi His­bollah-sam­tak­anna.
Hass­an Nasrallah, leiðtogi His­bollah-sam­tak­anna. AFP

Ísraelsher greinir frá því að Hass­an Nasrallah, leiðtogi His­bollah-sam­tak­anna, hafi látið lífið í árás hersins á höfuðstöðvar Hisbollah í Beirút í gærkvöldi. 

Heimildarmaður AFP-fréttaveitunnar innan samtakanna greinir frá því að ekki hefur náðst samband við leiðtogann síðan árásin var gerð.

Heimildarmaðurinn vildi ekki staðfesta hvort Nasrallah væri á lífi. 

Herzi Halevi, hershöfðingi Ísraela, sagði í yfirlýsingu að herinn myndi „ná til“ allra sem hótuðu ísraelskum borgurum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert