Söfnuðust saman á alþjóðadegi öruggra þungunarrofa

Frakkland var fyrsta ríki heims til að tryggja stjórnarskrárbundinn rétt …
Frakkland var fyrsta ríki heims til að tryggja stjórnarskrárbundinn rétt til þungunarrofs. AFP

Hundruð manna söfnuðust saman víðsvegar í Frakklandi í dag í tilefni af alþjóðadegi öruggra þungunarrofa.

Frakkland var fyrsta ríki í heiminum til þess að gera þungunarrof að stjórnarskrárbundnum rétti í mars á þessu ári. 

Mótmælendur söfnuðust saman til þess að sýna stuðning við framkvæmdinni eins og hún er í Frakklandi. Jafnframt var vakin athygli á ástandinu í öðrum ríkjum.

Fólk safnaðist saman víða í Frakklandi.
Fólk safnaðist saman víða í Frakklandi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert