Evrópuráðið heiðraði Machado

Maria Corina Machado heldur á þjóðfána Venesúela.
Maria Corina Machado heldur á þjóðfána Venesúela. AFP/Juan Barreto

Stjórn­ar­and­stæðing­ur­inn Mar­ina Cor­ina Machado hef­ur hlotið mann­rétt­inda­verðlaun Evr­ópuráðsins fyr­ir bar­áttu sína fyr­ir lýðræði í Venesúela sem for­set­inn Nicolas Maduro stjórn­ar með harðri hendi.

Machado kveðst vera djúpt snort­in og þakk­lát og seg­ir það mik­inn heiður að vera fyrsta mann­eskj­an frá Suður-Am­er­íku til að hljóta verðlaun­in, sem eru nefnd í höfuðið á fyrr­ver­andi for­seta Tékk­lands, Vaclav Havel.

Machado hef­ur verið í fel­um í Venesúela í kjöl­far for­seta­kosn­ing­anna í land­inu sem Maduro seg­ist hafa unnið. Stjórn­ar­andstaðan í land­inu hef­ur mót­mælt því harðlega.

Nicolas Maduro flytur ræðu á laugardaginn.
Nicolas Maduro flyt­ur ræðu á laug­ar­dag­inn. AFP/​Zurim­ar Campos

„Ég vil til­einka verðlaun­in þeim millj­ón­um Venesúela­búa sem á hverj­um degi hafa gildi og hug­mynd­ir Havels í há­veg­um,“ sagði Machado í mynd­bandsávarpi, en dótt­ir henn­ar, Ana, veitti verðlaun­un­um viðtöku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert