Donald Trump, forsetaframbjóðandi repúblikana, styrkir stöðu sína í nýjustu könnunum og þá er hann nú einnig talinn sigurstranglegri í veðbönkum.
Þetta kemur fram í yfirferð Hermanns Nökkva Gunnarssonar, blaðamanns á mbl.is og Morgunblaðinu, í Spursmálum í dag.
Ef litið er á kannanir þá eru stóru tíðindin í þessari viku þau að Trump mælist nú með forskot á Kamölu Harris, forsetaframbjóðanda demókrata, í mikilvægum sveifluríkjum eins og Pennsylvaníu og Michigan.
Forskotið er þó lítið því fylgismunurinn er innan við eitt prósentustig í báðum ríkjum. Fyrir viku síðan mældist hann með forskot í Arizona, Georgíu og Norður-Karólínu og gerir hann það enn.
Þá mælist hann einnig með forskot í Nevada en það lá ekki fyrir þegar myndskeiðið var tekið upp.
Hann mælist því með forskot á Harris í sex af sjö sveifluríkjum og myndi það skila honum 302 kjörmönnum. Á sama tíma myndi Harris fá 236 kjörmenn.
RealClearPolitics tekur einnig saman meðaltal veðbanka og samkvæmt þeim þá eru nú tæplega 54% líkur á því að Trump sigri í kosningunum.
Þetta er talsvert breyting á því sem var fyrir viku síðan en um er að ræða hátt 10 prósentustiga sveiflu Trump í hag.
Hermann ítrekar í innslaginu að veðbankar segi ekki til um það hver vinni kosningarnar en að þróunin síðustu daga bendi þó til þess að Trump sé með vindinn í bakið á lokasprettinum.
Gestir Spursmála að þessu sinni eru þau Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að neðan.