Vissi að hann myndi deyja í fangelsi

Alexei Navalní.
Alexei Navalní. AFP

Rúss­neski stjórn­ar­and­stöðuleiðtog­inn Al­ex­ei Navalní, sem lést í fe­brú­ar, vissi að hann myndi deyja í fang­elsi sam­kvæmt end­ur­minn­ing­um hans sem verða gefn­ar út síðar í októ­ber.

Fréttamiðill­inn The New Yor­ker hef­ur nú birt brot úr bók­inni sem inni­held­ur dag­bók­ar­skrif Navalnís á meðan hann sat í fang­elsi.

„Ég mun eyða rest­inni af líf­inu mínu hérna og deyja hérna,“ skrifaði stjórn­ar­and­stöðuleiðtog­inn í mars 2022 er hann sat í fanga­ný­lend­unni fyr­ir norðan heim­skauts­baug þar sem hann afplánaði 19 ára fang­els­is­dóm.

„Það verður eng­inn til að kveðja. Öll af­mæli verða hald­in án mín. Ég mun aldrei sjá barna­börn­in mín.“

Rúss­nesk út­gáfa gef­in út

End­ur­minn­ing­ar leiðtog­ans fanga þann ein­mana­leika sem fylgdi setu hans í fanga­ný­lend­unni en þó má einnig sjá vott af húm­or.

Í einu brot­anna úr end­ur­minn­ing­un­um sem hef­ur verið birt lýs­ir hann degi sín­um með þeim hætti að hann vakni kl. 06:00, borði morg­un­mat kl. 06:20 og fari að vinna kl. 06:40.

„Í vinn­unni sit­ur þú í sjö tíma við sauma­vél­ina á kolli fyr­ir neðan hnéhæð. Eft­ir vinnu held­urðu áfram að sitja í nokkr­ar klukku­stund­ir á tré­bekk und­ir mynd af Pútín. Þetta er kallað „aga­vinna.““

End­ur­minn­ing­arn­ar bera heitið Pat­riot, eða föður­lands­vin­ur, og verða gefn­ar út af banda­ríska út­gef­and­an­um Knopf, sem ætl­ar einnig að gera rúss­neska út­gáfu.

Vildi ekki gef­ast upp

Hef­ur rit­stjóri The New Yor­ker, Dav­id Remnick, sagt að ómögu­legt sé að lesa end­ur­minn­ing­ar Navalnís án þess að hneyksl­ast á hörm­ung­um þján­inga hans og dauða.

Í end­ur­minn­ing­un­um fæst einnig svar við því af hverju Navalní hélt aft­ur til Rúss­lands eft­ir að eitrað hafði verið fyr­ir hon­um og hann dvalið í Þýskalandi á meðan hann jafnaði sig.

„Ég vil ekki gef­ast upp á landi mínu eða svíkja það. Ef sann­fær­ing þín skipt­ir ein­hverju máli verður þú að vera reiðubú­inn til að berj­ast fyr­ir henni og færa fórn­ir ef þess þarf.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert