10.000 norðurkóreskir hermenn til liðs við Rússa

Selenskí í Brussel í dag.
Selenskí í Brussel í dag. AFP/John Thys

Rússar ætla sér að senda tíu þúsund norðurkóreska hermenn í bardaga við Úkraínumenn.

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti greindi frá þessu og vísaði í upplýsingar frá leyniþjónustu landsins.

Selenskí hefur áður sakað Norður-Kóreu um að senda hermenn til liðs við rússneska herinn. Núna hefur hann í fyrsta sinn gefið upp nákvæman fjölda hermanna.

„Við vitum af um tíu þúsund norðurkóreskum hermönnum sem þeir ætla að senda til að berjast við okkur,“ sagði forsetinn að loknum fundi með evrópskum ráðamönnum í Brussel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert