Vill sjá Pútín á bak við lás og slá

Yulia Navalnaía.
Yulia Navalnaía. AFP/Frederick Florin

Yulia Navaln­aía, ekkja rúss­neska stjórn­ar­and­stæðings­ins Al­ex­eis Navalnís, von­ar að Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seti fari einn dag frá því að vera „keis­ari Rúss­lands yfir í að vera venju­leg­ur fangi“.

Navaln­aía hét því í viðtali við breska blaðið The Sunday Times að halda áfram starfi eig­in­manns síns en ætl­ar ekki að snúa aft­ur til Rúss­lands til þess.

Al­ex­ei Navalní lést í fang­elsi í fe­brú­ar eft­ir að hafa í mörg ár verið helsti and­stæðing­ur Pútíns.

Navalnaía á ráðstefnu í síðasta mánuði.
Navaln­aía á ráðstefnu í síðasta mánuði. AFP/​Alex Kent

Navaln­aía sagðist í viðtal­inu aldrei hafa rætt um að leiða rúss­nesku stjórn­ar­and­stöðuna færi svo að eig­inmaður henn­ar myndi deyja. 

„Ég held að hann hefði viljað að ég héldi mig fjarri þess­um póli­tísku og hættu­legu hlut­um,“ sagði hún en ævim­inn­ing­ar Navalnís koma út á morg­un.

„En þú átt­ar þig á því að þú hef­ur ekk­ert val. Auðvitað gæt­irðu ekki sagt neitt en það er ekki ég. Ég gæti aldrei gefið Rúss­land upp á bát­inn.“

Í viðtali við BBC sagðist Navaln­aía jafn­framt hafa hug því að bjóða sig fram í kosn­ing­um í Rússlandi þegar rétti tím­inn gæf­ist.

Pútín á fundi í síðustu viku.
Pútín á fundi í síðustu viku. AFP/​Vyacheslav Prokofyev
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert