„Mikilvægast að bjarga sem flestum mannslífum“

Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, heimsótti neyðarsamhæfingarstöð í Valencia-héraði í dag.
Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, heimsótti neyðarsamhæfingarstöð í Valencia-héraði í dag. AFP

Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, heimsótti neyðarsamhæfingarstöð í Valencia-héraði í dag en hamfaraflóð riðu yfir svæðið í gær með þeim afleiðingum að nálægt 100 manns létust og fjölmargra er enn saknað.

Sánchez boðaði í gær þriggja daga þjóðarsorg vegna náttúruhamfaranna en hann hvetur fólk á flóðasvæðum til að halda sig heima og minnir fólk á að neyðarástandinu sé ekki lokið. Enn er varað við mikilli rigningu á sumum flóðasvæðum og eru veðurviðvaranir enn í gildi.

„Núna er mikilvægast að bjarga sem flestum mannslífum,“ segir forsætisráðherrann sem þakkaði starfsmönnum neyðarþjónustunnar og áréttaði að stjórnvöld muni aðstoða fólk á Valencia-svæðinu eins lengi og nauðsyn er á með öllum mögulegum úrræðum.

Maria Jose Catala, borgarstjóri í Valencia, greindi frá því í dag að níu lík hafi fundist í bílskúr í La Torre-hverfinu og að eitt fórnarlambanna væri lögreglumaður frá staðnum.

Bilhræ á járnbrautarteinum við bæinn Alfafar í Valencia-héraðinu.
Bilhræ á járnbrautarteinum við bæinn Alfafar í Valencia-héraðinu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert