Alríkislögreglan í Bandaríkjunum segir fjölda sprengjuhótana sem bárust kjörstöðum í nokkrum ríkjum í dag ekki trúverðugar. Virðist stór hluti þeirra hafa komið frá Rússlandi.
Bandaríkjamenn velja sér nýjan forseta í dag. Mikill viðbúnaður er og löggæsla hertari en í fyrri kosningum vegna mögulegra uppþota og ótta við ofbeldi í garð starfsfólks á kjörstöðum.
Sprengjuhótanir trufluðu lítillega atkvæðagreiðslu í Georgíu en hótanirnar eru ekki taldar raunverulegar.
„Alríkislögreglan er meðvituð um sprengjuhótanir sem bárust kjörstöðum í nokkrum ríkjum í dag, margar sem virðast koma frá rússneskum netföngum,“ sagði Savannah Syms, talskona lögreglunnar, í yfirlýsingu.
„Engin hótun hefur verið metin trúverðug hingað til,“ bætti hún við, og hvatti almenning til að halda ró sinni.
Loka þurfti minnst sjö kjörstöðum í Fulton-sýslu í Georgíu tímabundið vegna sprengjuhótana, engum þó lengur en í hálftíma, að sögn borgarstjóra Suður-Fulton.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem bandarísk yfirvöld saka Rússa um að hafa áhrif á kosningar.
Klukkutímum áður en kjörstaðir opnuðu höfðu yfirvöld varað við rússneskum falsfréttaflutningi um kosningasvindl í sveifluríkjum.
Á föstudag vöruðu yfirvöld einnig við djúpfölsuðu myndskeiði sem sýndi innflytjanda frá Haítí segja að hann hefði kosið mörgum sinnum.