Varnarmálaráðherra Ísraels rekinn

Netanjahú og Gallant á blaðamannafundi í október.
Netanjahú og Gallant á blaðamannafundi í október. AFP/Abir Sultan

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur vísað Yoav Gallant frá starfi varnarmálaráðherra. Netanjahú segir brottvísunina vera sökum trúnaðarbrests þeirra á milli í tengslum við átökin á Gasa.

Þess í stað hefur hann skipað Israel Katz, utanríkisráðherra Ísraels, í stöðu varnarmálaráðherra.

Gallant sagði, eftir brottvísunina, að varnarmál Ísraels yrðu honum ávallt hugleikin.

Netanjahú kveðst hafa reynt að brúa bilið á milli sín og Gallants en án árangurs. 

Hann sagði hættu stafa af því að almenningur, og einkum óvinir þeirra, gerðu sér grein fyrir ósætti þeirra á milli.

Netanjahú hefur skipað Gideon Saar utanríkisráðherra í stað Katz. 

Israel Katz, nýr varnarmálaráðherra Ísraels.
Israel Katz, nýr varnarmálaráðherra Ísraels. AFP/Attila Kisbenedek
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert