Repúblikaninn Ted Cruz lagði demókratann Colin Allred í baráttunni um sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir hönd Texas.
Þetta sýnir útgönguspá NBC-fréttastofunnar.
Sigurinn kemur ekki mörgum á óvart enda hefur Texas verið á valdi repúblikana í áratugi. Þá er Cruz enginn nýgræðingur en hann hefur setið í tvö kjörtímabil í öldungadeildinni.
Allred veitti þó óvænta mótspyrnu á síðustu vikum. Varði demókratinn milljónum dala í sjónvarpsauglýsingar og markaðsherferðir þar sem hann vakti m.a. athygli á að Cruz styddi bann við þungunarrofi eftir sex vikna meðgöngu.
Þrátt fyrir það greiddu um 47% kvenna atkvæði með Cruz.
Þá fékk hann mikinn stuðning meðal kjósenda af rómönskum uppruna (e. latino).