Selenskí: N-Kórea heyir stríð í Evrópu

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu.
Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu. AFP

Volodimír Selenskí, for­seti Úkraínu, seg­ir að Norður-Kórea heyi nú stríð í Evr­ópu. 

For­set­inn vís­ar þar til frétta af því að norðurkór­esk stjórn­völd hafi sent 10.000 manna herlið til Rúss­lands til að styðja við stríðsrekst­ur þeirra í Úkraínu. 

„Norður-Kórea er núna, í raun, að heyja stríð í Evr­ópu. Norðurkór­esk­ir her­menn reyna að drepa okk­ar fólk á evr­ópskri grundu,“ sagði Selenskí á leiðtoga­fundi Evr­ópu­ríkja sem fer fram í Búdapest, höfuðborg Ung­verja­lands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert