Kanadískur unglingur með fuglaflensu

Náin samskipti við alifugla eru helsti áhættuþáttur fyrir að fá …
Náin samskipti við alifugla eru helsti áhættuþáttur fyrir að fá fuglaflensu. AFP

Ung­ling­ur í Bresku–Kól­umb­íu í Kan­ada hef­ur greinst með fuglaflensu. Þetta er fyrsta staðfesta til­felli fuglaflensu í manni í Kan­ada.

Barnið er á sjúkra­húsi með H5-vírus­inn, að sögn heil­brigðis­yf­ir­valda í fylk­inu. Smitrakn­ing er í gangi.

Lík­legt þykir að smitið sé til komið frá fugli eða öðru dýri.

„Þetta er sjald­gæf­ur at­b­urður,“ sagði Bonnie Henry, heil­brigðis­full­trúi Bresku–Kól­umb­íu.

„Við erum að fram­kvæma ít­ar­lega rann­sókn til þess að skilja upp­tök smits­ins hér í B.C.“

Áhyggj­ur af fjölg­un

Fuglaflensu er oft­ast að finna í villt­um fugl­um og ali­fugl­um en hef­ur ný­lega greinst í spen­dýr­um. Fyrr á þessu ári varð far­ald­ur fuglaflensu í naut­grip­um í Banda­ríkj­un­um.

Viss af­brigði fuglaflensu geta sýkt menn og valdið þeim sjúk­dómi. Þetta er al­mennt mjög sjald­gæft en náin sam­skipti við ali­fugla eru helsti áhættuþátt­ur fyr­ir að fá fuglaflensu.

Vís­inda­menn hafa lýst yfir áhyggj­um af vax­andi fjölda spen­dýra sem smit­ast af fuglaflensu, jafn­vel þótt til­fell­in í mönn­um séu sjald­gæf.

Í sept­em­ber varð mann­eskja í Mis­souri–ríki fyrsta mann­eskj­an til þess að grein­ast með veiruna í Banda­ríkj­un­um án þess að hafa verið í kring­um sýkt dýr.

Fyrsta smitið greind­ist í Banda­ríkj­un­um árið 2022 og hafa öll önn­ur til­felli verið hjá bænd­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert