Íslensk erfðagreining mun áfrýja dómi Landsréttar frá því í dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu nú á tólfta tímanum.
Landsréttur snéri við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í mars á síðasta ári og sýknaði Persónuvernd af kröfu Íslenskrar erfðagreiningar um að ákvörðun Persónuverndar yrði felld úr gildi.
Hafði Persónuvernd komist að þeirri niðurstöðu að Íslensk erfðagreining hefði brotið gegn persónuverndarlögum í þremur málum sem vörðuðu notkun blóðsýna Covid-19-sjúklinga.