Karoline Leavitt verður talskona Hvíta hússins þegar Donald Trump tekur við embætti forseta Bandaríkjanna á ný. Trump tilkynnti um þetta í gær.
Leavitt er 27 ára. Hún var talskona forsetaframboðs Trumps í kosningabaráttunni. Þá starfaði hún sem aðstoðarblaðafulltrúi Trumps á fyrsta kjörtímabili hans í Hvíta húsinu.
Árið 2022 sóttist Leavitt eftir sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir New Hampshire-ríki, en hafði ekki erindi sem erfiði.
Þá hefur hún einnig starfað sem samskiptastjóri fyrir þingkonuna Elise Stefanik, sem Trump hefur tilnefnt sem sendiherra Sameinuðu þjóðanna.