Eldflaugavarnarkerfi í skiptum fyrir hermenn

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, er hann flutti ræðu í gær.
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, er hann flutti ræðu í gær. AFP

Norður-Kór­eu­menn fengu eld­flauga­varn­ar­kerfi frá Rúss­um í skipt­um fyr­ir her­menn í stríðinu gegn Úkraínu.

Þjóðarör­ygg­is­ráðgjafi Suður-Kór­eu, Shin Won-sik, greindi frá þessu í viðtali við sjón­varps­stöðina SBS.

„Það hef­ur komið í ljós að búnaður og eld­flauga­varn­ar­kerfi sem miðast við að styrkja ber­skjaldaðar loft­varn­ir Pyongyang hafa verið flutt­ar til Norður-Kór­eu,“ sagði Shin.

Kim Jong-un ásamt hermönnum í gær.
Kim Jong-un ásamt her­mönn­um í gær. AFP

Rúss­ar eru einnig sagðir hafa út­vegað Norður-Kór­eu yfir millj­ón tunn­ur af olíu síðan í mars á þessu ári. Þau tíðindi byggja á gervi­hnatta­mynd­um frá sam­tök­un­um Open Source Centre sem eru óhagnaðardrif­in og starfa í Bretlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert