Rússar sagðir útvega N-Kóreu milljón olíutunnur

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, og Vla­dimír Pútín Rússlandsforseti takast í …
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, og Vla­dimír Pútín Rússlandsforseti takast í hendur á síðasta ári. AFP

Rúss­ar eru sagðir hafa út­vegað Norður-Kór­eu yfir millj­ón tunn­ur af olíu síðan í mars á þessu ári.

Þessi tíðindi byggja á gervi­hnatta­mynd­um frá sam­tök­un­um Open Source Centre sem eru óhagnaðardrif­in og starfa í Bretlandi.

Að sögn sér­fræðinga og Dav­ids Lammy, ut­an­rík­is­ráðherra Bret­lands, er olí­an notuð sem greiðsla fyr­ir vopn­in og her­menn­ina sem Norður-Kór­eu­menn hafa sent til Rúss­lands vegna stríðsins í Úkraínu, að því er BBC grein­ir frá.

Brot gegn refsiaðgerðum SÞ

Þessi viðskipti eru brot gegn refsiaðgerðum Sam­einuðu þjóðanna, sem banna lönd­um að selja olíu til Norður-Kór­eu, nema í litlu magni. Með því er reynt að hafa hem­il á efna­hag lands­ins til að koma í veg fyr­ir að það haldi áfram þróun kjarn­orku­vopna.

Leggj­ast 43 sinn­um að bryggju

Í gervi­hnatta­mynd­un­um, sem var ein­göngu deilt með BBC, sjást á ann­an tug norðurkór­eskra olíu­flutn­inga­skipa leggj­ast að bryggju í aust­ur­hluta Rúss­lands sam­tals 43 sinn­um síðustu átta mánuðina.

Fleiri mynd­ir sem voru tekn­ar af skip­un­um á hafi úti virðast sýna skip­in leggj­ast að bryggju næst­um tóm en fara þaðan næst­um full.

Rúss­neska ut­an­rík­is­ráðuneytið svaraði ekki fyr­ir­spurn BBC um viðbrögð við fregn­un­um.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert