Ása Ellerup flutt út og ætlar að selja húsið

Húsleit var gerð á heimili Ásu Ellerup og Rex Heuermann …
Húsleit var gerð á heimili Ásu Ellerup og Rex Heuermann eftir að hann var handtekinn í júlí 2023. AFP/Yuki Iwamura

Ása Ell­erup, eig­in­kona meinta raðmorðingj­ans Rex Heu­er­mann, ætl­ar að setja hús fjöl­skyld­unn­ar í Long Is­land í sölu.

New York Times grein­ir frá þessu en DV greindi frá fyrst­ur ís­lenskra miðla. 

Í grein NYT seg­ir að flutn­ingagám­ur hafi verið fyr­ir utan hús Ásu í Massapequa Park í vik­unni. 

„Það besta sem gæti komið fyr­ir er að þeir jafni húsið við jörðu og byggi nýtt svo að minn­ing þess sé afmáð,“ sagði hinn átt­ræði ná­granni Ásu, Al­bert Cella.

Heu­er­mann er nú í fang­elsi í Su­ffolk–sýslu og býður rétt­ar­halda. Hann er ákærður fyr­ir að hafa myrt sex kon­ur frá ár­inu 1993. Hann neit­ar sök.

Að sögn lög­manns Ásu ætl­ar hún að flytja til Suður-Karólínu með tveim­ur upp­komn­um börn­um sín­um. Hún keypti hús þar fyr­ir nokkr­um árum til þess að eyða elli­ár­un­um í.

Að sögn lög­manns Ásu mun skilnaður þeirra hjóna ganga í gegn á næstu sex mánuðum og verður þá heim­ilið í Massapequa Park sett á sölu.

Heuermann er nú í fangelsi í Suffolk–sýslu og býður réttarhalda.
Heu­er­mann er nú í fang­elsi í Su­ffolk–sýslu og býður rétt­ar­halda. AFP

Bjuggu í hús­inu í þrjá ára­tugi 

Húsið er æsku­heim­ili Heu­er­manns og bjó Ása með hon­um þar síðustu þrjá ára­tugi.

Frá heim­il­inu fór Heu­er­mann á skrif­stofu sína á Man­hatt­an þar sem hann starfaði sem arki­tekt.

Að sögn sak­sókn­ara hitti hann svo vænd­is­kon­ur nokk­ur ör­laga­rík kvöld, myrti þær og skildi lík þeirra eft­ir á Gil­go–strönd og víðar.

Í kjall­ara húss­ins er Heu­er­mann sagður hafa geymt vopn og „skipu­lags­skjal“ fyr­ir morðin. 

Er Heu­er­mann var hand­tek­inn í júlí árið 2023 bjuggu Ása og börn henn­ar áfram í hús­inu, jafn­vel eft­ir að lög­regla sneri öllu á hvolf og lagði hald á um­fangs­mikið magn af sönn­un­ar­gögn­um.

Ása skrifaði und­ir samn­ing við fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Peacock/​​NBC um gerð heim­ild­ar­mynd­ar um líf þeirra fyr­ir ári síðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert