Rússar ráða jemenska skæruliða til sín

Margir skæruliðanna voru sendir gegn sínum vilja á vegum undirheimasamtaka …
Margir skæruliðanna voru sendir gegn sínum vilja á vegum undirheimasamtaka með tengsl við Húta. AFP/Mohammed Huwais

Rúss­ar hafa fengið hundruð jem­enskra skæru­liða til liðs við sig í stríðinu í Úkraínu. Skæru­liðarn­ir voru flutt­ir til Rúss­lands á veg­um und­ir­heima­sam­taka sem tengj­ast hryðju­verka­sam­tök­um Húta í Jemen.

Fin­ancial Times grein­ir frá.

Norður-Kórea sendi um tíu þúsund her­menn til Rúss­lands til þess að veita Rúss­um lið í stríðinu í síðasta mánuði. 

Send­ir á fremstu víg­línu stríðsins

Skæru­liðarn­ir, á leið sinni til Rúss­lands, sögðu blaðamanni FT að þeim hefði verið lofað háum laun­um og í sum­um til­fell­um rúss­nesk­um rík­is­borg­ara­rétti.

Við komu þeirra til Rúss­lands voru þeir strax neydd­ir til herþjón­ustu og send­ir á fremstu víg­lín­ur stríðsins í Úkraínu.

Marg­ir skæru­liðanna voru send­ir gegn sín­um vilja á veg­um und­ir­heima­sam­taka með tengsl við Húta.

Emb­ætt­is­menn vest­an­hafs hafa lýst áhyggj­um sín­um af þró­un­inni og segja hana gefa til kynna að Rúss­ar séu að færa sig nær klerka­stjórn­inni í Íran.

Hafa áhyggj­ur af því að Rúss­ar vopni Húta

Ræðismaður Banda­ríkj­anna í Jemen, Tim Lend­erk­ing, staðfesti um­fjöll­un FT um að Rúss­ar væru í tengsl­um við Húta og að þeir hefðu rætt vopna­skipti sín á milli, en vildi ekki tjá sig frek­ar um málið.

„Við vit­um að það er starfslið á veg­um Rússa í Sana (höfuðborg Jemen) sem er að reyna að efla þessi tengsl,“ sagði hann og að áhyggj­ur væru uppi um að Rúss­ar gætu veitt Hút­um vopn til þess að ráðast á skip í Rauðahafi.

Blaðamenn FT reyndu að ná tali af tals­manni Húta, en hann gaf ekki færi á sér. Mohammed al Buk­haiti, meðlim­ur Húta, sagði í viðtali við rúss­neska fjöl­miðil­inn Med­uza fyrr í mánuðinum að Hút­ar væru í stöðugum sam­skipt­um við yf­ir­völd í Rússlandi. 

Skæruliðarnir, á leið sinni til Rússlands, sögðu blaðamanni FT að …
Skæru­liðarn­ir, á leið sinni til Rúss­lands, sögðu blaðamanni FT að þeim hefði verið lofað háum laun­um og í sum­um til­fell­um rúss­nesk­um rík­is­borg­ara­rétti. AFP/​Mohammed Huwais

Skildu ekki und­ir hvað þeir voru að skrifa

Skæru­liðarn­ir voru látn­ir skrifa und­ir samn­ing við fyr­ir­tækið Al Jabri sem er á veg­um Abdulwali Abdo Hass­an al-Jabri, þekkts stjórn­mála­manns inn­an raða Húta.

Elsta ný­skrán­ing skæru­liða hjá fyr­ir­tæk­inu var í júlí á þessu ári sam­kvæmt þeim samn­ing­um sem FT hef­ur und­ir hönd­um.

Einn nýliðanna sagði í smá­skila­boðum við blaðamann FT að hann teldi sig vera með um 200 öðrum jem­ensk­um skæru­liðum á leið til Rúss­lands. 

Hann sagði sig hafa verið ginnt­an til að skrifa und­ir samn­ing­inn með fögr­um orðum um at­vinnu við ör­ygg­is­gæslu eða sem verk­fræðing­ur. At­vinnu sem hann vonaðist til að gæti nýst sér til að fjár­magna nám sitt. 

Fjór­um mánuðum síðar var hann stadd­ur í skógi í Úkraínu á fremstu víg­línu stríðsins. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert