Brian Thompson: Drífandi leiðtogi sem var myrtur

Brian var myrtur rétt fyrir klukkan sjö í gærmorgun.
Brian var myrtur rétt fyrir klukkan sjö í gærmorgun. AFP/UnitedHealth Group

Bri­an Thomp­son, for­stjóri stærsta sjúkra­trygg­inga­fyr­ir­tæk­is Banda­ríkj­anna, sem var skot­inn til bana í New York í gær, var metnaðarfull­ur en þægi­leg­ur leiðtogi sem á ræt­ur sín­ar að rekja til smá­bæj­ar í Iowa.

Banda­ríska dag­blaðið Wall Street Journal (WSJ) grein­ir frá.

Thomp­son var 50 ára tveggja barna faðir og tók við sem for­stjóri United­Healt­hcare árið 2021. Snemma morg­uns í gær var hann hins veg­ar myrt­ur í skipu­lagðri árás laun­morðingja, að því er virðist.

Hafði áður fengið hót­an­ir

Mynd­skeið af at­vik­inu er í dreif­ingu þar sem sjá má bys­su­m­ann­inn, með skamm­byssu og hljóðdeyfi, skjóta Thomp­son nokkr­um sinn­um fyr­ir utan hót­el hvar fyr­ir­tækið var með ráðstefnu.

Um 50 millj­ón­ir manns eru með sjúkra­trygg­ing­ar hjá United­Healt­hcare og á síðasta ári voru tekj­ur fé­lags­ins 281 millj­arður doll­ara.

Eig­in­kona Thomp­sons sagði í viðtali við NBC að hann hefði fengið hót­an­ir sem tengd­ust hugs­an­lega deil­um vegna sjúkra­trygg­inga.

For­svars­menn sjúkra­trygg­inga­fyr­ir­tækja segja við WSJ að það sé ekki óeðli­legt að fyr­ir­tæki og for­svars­menn þeirra lendi í hót­un­um eða mál­sókn­um frá viðskipta­vin­um.

Oft og tíðum er kvartað eða kært vegna hás verðs eða vegna þess að ein­hverj­um er synjað um ákveðna trygg­ingu.

Thompson var myrtur fyrir utan hótel þar sem fyrirtækið var …
Thomp­son var myrt­ur fyr­ir utan hót­el þar sem fyr­ir­tækið var að halda ráðstefnu. AFP/​getty Ima­ges/​Spencer Platt

Stór per­sónu­leiki og „gáfaðasti maður­inn í her­berg­inu“

Fyrr­ver­andi sam­starfs­menn Thomp­sons segja hann hafa verið með mikið keppn­is­skap og verið dríf­andi, en einnig verið fynd­inn og með gott viðmót við starfs­menn. Hann mundi nöfn vel og talaði vel um heima­bæ sinn í Iowa, Jewell.

„Hann var stór per­sónu­leiki inn­an fyr­ir­tæk­is­ins,“ sagði William Gold­en, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá United­Healt­hcare.

Steve Nel­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá United­Health, sem nú rek­ur Aetna-deild CVS Health, sagði að Thomp­son hefði stund­um dregið úr spennu vegna skoðana­ágrein­ings með því að skora á menn í sjó­mann.

„Hann var gáfaðasti maður­inn í her­berg­inu, en ein­hvern veg­inn ekki á pirr­andi hátt,“ sagði Nel­son.

Hér má sjá byssumanninn er hann skaut á Thompson.
Hér má sjá bys­su­m­ann­inn er hann skaut á Thomp­son. Skjá­skot úr eft­ir­lits­mynda­vél/​Lög­regl­an í New York

Al­inn upp í 1.200 manna bæ

Mörg­um þótti vel­gengi hans merki­leg og dæmi um það hvað er mögu­legt í Banda­ríkj­un­um, en hann var al­inn upp í 1.200 manna sveitaþorpi vel fjarri stór­borg­um. Faðir hans vann í korn­lyftu í 40 ár og hjálpaði bænd­um að losa og geyma korn­farma.

Hann dúxaði í fram­halds­skóla og fór svo í Iowa-há­skóla, þar sem hann var með hæstu loka­ein­kunn­ina í sín­um bekk.

Thomp­son var end­ur­skoðandi að mennt og réð sig til United­Health árið 2004. Eft­ir að hafa unnið að samruna og yf­ir­tök­um starfaði hann við fjár­mála­störf áður en hann skipti yfir í sí­fellt meira áber­andi stjórn­un­ar­störf þar sem hann gegndi lyk­il­hlut­verki í upp­bygg­ingu stór­fyr­ir­tæk­is­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert