Einn í haldi lögreglu: Fundu hljóðdeyfi og fölsuð skilríki

Brian Thompson var myrtur við Midtown Hilton-hótelið 4. desember.
Brian Thompson var myrtur við Midtown Hilton-hótelið 4. desember. AFP

Lög­regl­an í borg­inni Altoona í Penn­sylvan­íu­ríki er með karl­mann í haldi vegna morðsins á Bri­an Thomp­son, for­stjóra United­Healt­hcare, sem var skot­inn til bana í New York í síðustu viku.

CNN grein­ir frá því að lög­regla hafi fengið ábend­ingu í mál­inu sem leiddi hana á spor karl­manns sem var að ferðast með rútu og hafði í fór­um sín­um hljóðdeyfi og fölsuð skil­ríki. Maður­inn er nú í haldi lög­regl­unn­ar þar sem hann sæt­ir yf­ir­heyrslu.

Ekki greint frá nafni eða til­drög­um

Áður hef­ur verið greint frá að lög­reglu­menn sem eru að rann­saka morðið væru komn­ir til Georgíu­rík­is í leit að morðingj­an­um en leit að hon­um hef­ur staðið yfir í fimm daga.

Þá hef­ur lög­regl­an enn ekki veitt upp­lýs­ing­ar um nafn hins grunaða eða hver voru til­drög árás­ar­inn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert