Telja að morðinginn hafi flúið til Georgíu

Meginþungi rannsóknarinnar hefur farið fram við Central Park í New …
Meginþungi rannsóknarinnar hefur farið fram við Central Park í New York. AFP

Lög­reglu­menn sem rann­saka morðið á Bri­an Thomp­son, for­stjóra United­Healt­hcare, eru komn­ir til Georgíu­rík­is í leit að morðingj­an­um. 

Thomp­son var skot­inn til bana úti á götu á Man­hatt­an í New York í liðinni viku. Árás­armaður­inn, sem var hettu­klædd­ur og með grímu fyr­ir vit­um, náði að forða sér eft­ir ódæðið. Talið er að hann hafi náð að yf­ir­gefa borg­ina um borð í rútu. 

Heim­ild­ar­menn inn­an lög­regl­unn­ar hafa tjáð banda­rísku frétta­stof­unni CBS að lög­reglu­menn séu nú á vett­vangi í Georgíu­ríki sem er í suður­hluta lands­ins. 

Brian Thompson var myrtur við Midtown Hilton-hótelið 4. desember.
Bri­an Thomp­son var myrt­ur við Midtown Hilt­on-hót­elið 4. des­em­ber. AFP

Leit staðið yfir í fimm daga - Fundu Monopoly-seðla

Brian Thompson var fimmtugur tveggja barna faðir.
Bri­an Thomp­son var fimm­tug­ur tveggja barna faðir. AFP

Leit­in hef­ur nú staðið yfir í fimm daga og hef­ur lög­regl­an enn ekki veitt upp­lýs­ing­ar um nafn hins grunaða eða hver voru til­drög árás­ar­inn­ar. Lög­regl­an hef­ur aft­ur móti birt mynd­efni úr eft­ir­lits­mynda­vél­um sem sýn­ir árás­ar­mann­inn grímu­klædd­an á ferð. 

Fram kem­ur á vef BBC, að meg­inþungi rann­sókn­ar­inn­ar hafi farið fram í New York, n.t.t. í og við Central Park, en talið er að morðing­inn hafi náð að skapa sér flótta­leið í gegn­um al­menn­ings­garðinn. 

Leitað var í stöðuvatni garðsins í gær í annað sinn og þá fannst yf­ir­gef­inn bak­poki skammt frá. Í hon­um var að finna jakka og seðla úr borðspil­inu Monopoly. Skot­vopn var aft­ur á móti hvergi sjá­an­legt. 

Flúði í gegn­um Central Park

Lög­regl­an tel­ur að árás­armaður­inn hafi hjólað í Central Park skömmu eft­ir árás­ina. Hann hafi í kjöl­farið tekið leigu­bíl eft­ir að hafa yf­ir­gefið garðinn við Upp­er West Side. 

Um helg­ina birti lög­regla mynd­ir af mann­in­um þar sem hann sat í leigu­bif­reið sem ók í átt­ina að Port Aut­ho­rity-um­ferðarmiðstöðina skammt frá Washingt­on Heig­hts.

Eng­ar mynd­ir hafa náðst af mann­in­um yf­ir­gefa um­ferðarmiðstöðina og því tel­ur lög­regl­an að hann hafi farið um borð í rútu og þannig náð að sleppa. 

Mynd úr eftirlitsmyndavél sem sýnir hinn meinta morðingja á ferð …
Mynd úr eft­ir­lits­mynda­vél sem sýn­ir hinn meinta morðingja á ferð í borg­inni. AFP

Besta mynd­in náðist þegar maður­inn skráði sig á hostel

Hann kom til borg­ar­inn­ar með rútu tíu dög­um fyr­ir árás­ina. En vitað er að rút­an ók á milli Atlanta í Georgíu og New York. Hann skráði sig svo inn á hostel þar sem hann sýndi af­greiðslu­manni and­lit sitt í augna­blik, og þannig tókst lög­regl­unni að ná skýr­ustu mynd­inni af hon­um sem hef­ur hingað til verið birt. 

Þá hef­ur lög­regl­an ekki sagt neitt um af hverju Thomp­son var myrt­ur. Hann var fimm­tug­ur tveggja barna faðir. Ein get­gáta er sú að þetta hafi mögu­lega verið árás á sjúkra­trygg­inga­kerfið. Á vett­vangi fund­ust tóm skot­hylki sem búið var að skrifa orðin "depose," "deny" og "delay", sem út­leggja má á ís­lensku sem víkja frá völd­um, neita og tefja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert