Mangione hrópaði að fjölmiðlum

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Hinn 26 ára gamli Luigi Mangi­o­ne, sem grunaður er um að hafa orðið Bri­an Thomp­son að bana á göt­um New York-borg­ar í síðustu viku, hrópaði að fjöl­miðlamönn­um er hann var færður inn í rétt­ar­sal í Penn­sylvan­íu­ríki í dag. 

    Meðal þess sem hann kallaði að fjöl­miðlum var orðið „órétt­læti“ og „móðgun við greind Banda­ríkja­manna“.

    Mangi­o­ne er ákærður fyr­ir að myrða Thomp­son, og hef­ur einnig verið ákærður fyr­ir brot á lög­um um skot­vopn. Auk þeirra er hann ákærður fyr­ir fjölda brota í Penn­sylvan­íu, þar á meðal fyr­ir að vera með fölsuð skil­ríki á sér. 

    Í New York-ríki á hann yfir höfði sér tvær ákær­ur fyr­ir að bera skot­vopn á sér.

    Luigi Mangione var í appelsínugulum heilgalla er hann var færður …
    Luigi Mangi­o­ne var í app­el­sínu­gul­um heil­galla er hann var færður í rétt­ar­sal­inn í Penn­sylvan­íu í dag. AFP/​Jeff Swen­sen

    And­mælti framsals­kröfu

    Í rétt­ar­saln­um í Penn­sylvan­íu­ríki í dag mót­mælti hann framsals­kröfu til New York-rík­is. Hann sæt­ir nú gæslu­v­arðhaldi og fær ekki tæki­færi til að losna gegn trygg­ingu. Sak­sókn­ari seg­ir and­mæli Mangi­o­ne aðeins vera til þess að flækja mál­in.

    Verj­end­ur hans hafa nú tvær vik­ur til þess að rök­styðja af hverju hann skuli ekki vera fram­seld­ur til New York.

    Kat­hy Hoch­ul, rík­is­stjóri New York-rík­is, sagði í til­kynn­ingu síðdeg­is í dag að hún ynni nú hörðum hönd­um að því að fá Mangi­o­ne fram­seld­an til rík­is­ins. Kvaðst hún vera í sam­skipt­um við rík­is­sak­sókn­ara um framsalið.

    Hoch­ul sagði enn frem­ur að það væri for­gangs­mál henn­ar að tryggja ör­yggi íbúa á göt­um New York.

    Mangione hefur andmælt framsalskröfu til New York.
    Mangi­o­ne hef­ur and­mælt framsals­kröfu til New York. AFP/​Jeff Swen­sen

    Fundu stefnu­yf­ir­lýs­ingu

    Thomp­son, sem var for­stjóri United Healt­hCare, eins stærsta trygg­inga­fyr­ir­tæk­is Banda­ríkj­anna, var skot­inn til bana úti á götu í Man­hatt­an í New York. Upp­hófst mik­il leit að bana­manni hans og endaði hún í Altoona í Penn­sylvan­íu í gær þegar starfsmaður McDon­ald's kom auga á grun­sam­leg­an mann.

    Í fór­um Mangi­o­ne fund­ust þrjár handskrifaðar blaðsíður, eins kon­ar stefnu­yf­ir­lýs­ing, og er sagt að í þeim texta axli Mangi­o­ne ábyrgð á morðinu á Thomp­son. Þá er hann sagður hafa skrifað um gremju sína út í heil­brigðis­kerfið og trygg­inga­kerfið í Banda­ríkj­un­um.

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert