Meintum morðingja hampað sem hetju og kyntákni

Luigi Mangione á sér stóran aðdáendahóp á samfélagsmiðlum, meðal annars …
Luigi Mangione á sér stóran aðdáendahóp á samfélagsmiðlum, meðal annars vegna þess að hann þykir myndarlegur. Samsett mynd

For­stjóri sjúkra­trygg­inga­fyr­ir­tæk­is var skot­inn til bana í New York. Og In­ter­netið held­ur með… morðingj­an­um?

Morðið á Bri­an Thomp­son, for­stjóra United­Healt­hCare (UHC) eins stærsta sjúkra­trygg­inga­fyr­ir­tæk­is Banda­ríkj­anna, hef­ur fljótt orðið eitt helsta umræðuefni á sam­fé­lags­miðlum síðustu vik­una.

Málið er í raun tekið að snú­ast um ójöfnuð í land­inu og gremju Banda­ríkja­manna gagn­vart trygg­inga­stofn­un­um sem halda grett­i­staki utan um heilsu lands­manna.

Sum­ir hafa hampað bana­mann­in­um sem alþýðuhetju og hef­ur hann verið kallaður „Tjóna­matsmaður­inn“, eða „The Adju­ster“ á ensku. Og ekki sak­ar það að hinn grunaði þyki mynd­ar­leg­ur.

Net­verj­ar fá ekki nóg

Eins og helstu miðlar hafa greint frá sit­ur hinn 26 ára Luigi Mangi­o­ne í varðhaldi þar sem hann er grunaður um morðið. Lögmaður Mangi­o­nes, Thom­as Dickey, seg­ir að yf­ir­völd hafi „núll sönn­un­ar­gögn sem tengja Mangi­o­ne við morðið“.

En frá því að hinn grunaði var fyrst nafn­greind­ur á mánu­dag, eft­ir að hann var hand­tek­inn á McDon­ald's-stað í Penn­sylvan­íu, hafa æ fleiri smá­atriði um Mangi­o­ne komið í ljós. Og virðast þau koma mörg­um á óvart.  Mangi­o­ne út­skrifaðist úr virt­um há­skóla og er sagður eiga ríka for­eldra. Hann er sagður af­bragðsnámsmaður og vel les­inn.

Sam­fé­lags­miðlareikn­ing­ar og færsl­ur Mangi­o­nes hafa nú dreifst sem eld­ur í sinu um net­heima. Ein­hverj­ir hafa tengt GoodReads-færslu sem virðist birt í nafni Mangi­o­nes við morðið, en þar gef­ur hann stefnu­yf­ir­lýs­ingu hryðju­verka­manns­ins Teds Kaczynskis (Una­bom­ber) fjór­ar stjörn­ur.

Ein­hverj­ir hafa þá haft orð á út­liti hins grunaða, sem þykir ekki ljót­ur.

„Smooth Crim­inal“

Það má finna aðdá­enda­klúbb fyr­ir nán­ast allt á net­inu. Í kjöl­far morðsins myndaðist fljótt hóp­ur aðdá­enda í kring­um bana­mann­inn, jafn­vel þótt þeir vissu ekk­ert um hann.

Í skýrslu NCRI þar sem farið er yfir sam­fé­lags­miðlafærsl­ur sem tengj­ast morðinu seg­ir að í vin­sæl­ustu færsl­un­um á X hafi fólk ým­ist lýst yfir „skýr­um eða skil­yrðis­laus­um stuðningi“ við morðið eða svert fórn­ar­lambið. Orðræða af þess­um toga, sem hef­ur áður tak­mark­ast nær al­farið við jaðarmiðla eins og 4ch­an, hafi nú fundið sér far­veg inn á meg­in­straumsmiðla.

En jafn­vel áður en Mangi­o­ne var nafn­greind­ur voru marg­ir þegar farn­ir að lof­syngja bana­mann­inn. Bók­staf­lega.

Maður að nafni Joe Devito birti mynd­skeið af sér þar sem hann syng­ur ballöðu um bana­mann­inn og vís­ar í orðin „neita, verja og út­skúfa“ sem áletruð voru á skot­hylki sem fund­ust á vett­vangi (e. „deny, def­end, depose“).

Eft­ir að greint var frá því að starfsmaður McDon­ald's hefði upp­lýst lög­reglu um staðsetn­ingu Mangi­o­nes birt­ist skyndi­lega grúi slæmra meðmæla á Google-prófíl veit­ingastaðar­ins.

11 þúsund manns hafa vistað lagalista á streym­isveit­unni Spotify sem er til­einkaður morðingja Thomp­sons, en hann geym­ir m.a. lög­in Ang­el with a Shotg­un og Smooth Crim­inal.

Það er því ljóst að marg­ir halda með morðingj­an­um, hvort sem hann sé í raun Mangi­o­ne eða ann­ar.

„Hesma þúsma mesma vosma kasma isma?“ spurðu Stuðmenn. Textann má …
„Hesma þúsma mesma vos­ma kasma isma?“ spurðu Stuðmenn. Text­ann má þýða sem „held­ur þú með vonda karl­in­um?“ Net­verj­ar virðast óviss­ir um hver vondi karl­inn er í þessu máli. AFP

Hvaðan kem­ur þetta?

En hvers vegna finn­ur fólk sig knúið til að fagna morðinu? Og hvaðan kem­ur þessi reiði í garð sjúkra­trygg­inga­kerf­is­ins?

Ólíkt Íslandi hafa Banda­rík­in ekki skatt­greidda heil­brigðisþjón­ustu. Þegar Banda­ríkja­menn sækja sér læknaþjón­ustu er hún yf­ir­leitt greidd í gegn­um sjúkra­trygg­ing­ar einkaaðila.

Og einka­rek­in sjúkra­trygg­inga­fyr­ir­tæki á borð við UHC hafa árum sam­an legið und­ir ásök­un­um frá fjöl­miðlum og yf­ir­völd­um um að hafna viðskipta­vin­um sín­um um þjón­ustu, einkum ef þjón­ust­an er dýr.

UHC hef­ur lang­hæsta höfn­un­ar­hlut­fallið af öll­um slík­um fyr­ir­tækj­um, 32%, sem er tvö­falt hærra en meðaltalið meðal trygg­inga­stofn­anna. Á sama tíma hef­ur fyr­ir­tækið hagn­ast um 16 millj­arða banda­ríkja­dala á síðasta ári, að því er New Yor­ker grein­ir frá.

New York Times segj­ast hafa lög­reglu­skýrslu und­ir hönd­um þar sem fram komi að í stefnu­skrá sem fannst í fór­um Mangi­o­nes sé ýjað að því að hann hafi myrt for­stjór­ann vegna „meintr­ar spill­ing­ar“ inn­an heil­brigðisþjón­ustu­geir­ans.

Banamaður­inn, hvort sem hann er Mangi­o­ne eða ein­hver ann­ar, virðist í aug­um margra vera orðinn að mann­gerv­ingu fyr­ir gremju þeirra sem hafa þurft að standa í striti vegna skulda við sjúkra­trygg­inga­fé­lög. Og út frá færsl­um á sam­fé­lags­miðlum að dæma virðist stuðning­ur við ódæðaverk bana­manns­ins ekki endi­lega ein­skorðast við annaðhvort hægri eða vinstri stjórn­mál.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert