Páfi vonast eftir lausn í Sýrlandi

Frans Páfi flytur ávarp sitt í Vatíkaninu í morgun.
Frans Páfi flytur ávarp sitt í Vatíkaninu í morgun. AFP

Frans páfi kall­ar eft­ir gagn­kvæmri virðingu á milli trú­ar­bragða í Sýr­landi í kjöl­far þess að Bash­ar al-Assad, fyrr­ver­andi for­seta lands­ins, var steypt af stóli af upp­reisn­ar­mönn­um á sunnu­dag­inn.

„Ég bið að sýr­lenska þjóðin megi lifa í friði og ör­yggi í sínu ástkæra landi og hin ólíku trú­ar­brögð megi ganga sam­an í vináttu og gagn­kvæmri virðingu fyr­ir hag þeirr­ar þjóðar sem þjáðist af svo margra ára stríði,“ sagði Frans í viku­legu ávarpi sínu í Vatíkan­inu í dag.

Páfi tók fram að á þessu viðkvæma augna­bliki í sögu Sýr­lands von­ist hann til þess að póli­tísk lausn ná­ist án frek­ari átaka og sundr­ung­ar.

Mohammad al-Bashir, nýr bráðabirgðafor­sæt­is­ráðherra Sýr­lands, hef­ur sagt að kom­inn sé tími á stöðug­leika og ró í land­inu.

Assad flúði til Rúss­lands frá Sýr­landi eft­ir að upp­reisn­ar­menn náðu höfuðborg­inni Dam­askus á sitt vald á sunnu­dag­inn. Þar með var endi bund­inn á fimm ára­tuga grimmi­lega valdatíð Assad-fjöl­skyld­unn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert