Norðurkóreskir hermenn felldir í Evrópu

Stjórnvöld í Norður-Kóreu sendu þúsundir hermanna til Rússlands til þess …
Stjórnvöld í Norður-Kóreu sendu þúsundir hermanna til Rússlands til þess að berjast við Úkraínumenn. Virðast þeir vera auðveldara skotmark á vígvellinum sökum skorts á reynslu. AFP/KCNA

Úkraínu­menn hafa sært eða drepið nokk­ur hundruð norðurkór­eska her­menn sem berj­ast fyr­ir Rúss­land.

Þetta seg­ir hátt­sett­ur emb­ætt­ismaður inn­an varn­ar­málaráðuneyt­is Banda­ríkj­anna í sam­tali við AFP-frétta­veit­una und­ir nafn­leynd.

Í gær sagði leyniþjón­usta úkraínska hers­ins seg­ir að úkraínsk­ir her­menn hefðu drepið eða sært að minnsta kosti 30 norðurkór­eska her­menn í Kúrsk-héraði.

Þúsund­ir her­manna frá Norður-Kór­eu hafa bæst í hóp rúss­neska her­manna í stríðinu gegn Úkraínu, þar á meðal landa­mæra­svæðinu í Kúrsk.

Aldrei áður verið í stríðsátök­um

„Þetta eru ekki her­menn sem hafa verið hert­ir í bar­daga. Þeir hafa ekki verið í stríðsátök­um áður,“ sagði hann og bætti við að þetta væri lík­lega or­sök þess að þeir hefðu orðið fyr­ir því mann­falli sem þeir hefðu orðið fyr­ir af hendi Úkraínu­manna.

Um­mæli emb­ætt­is­manns­ins um mann­fallið koma í kjöl­far þess að Oleks­andr Sirskí, yf­ir­maður allra herja Úkraínu, sagði að Rúss­ar hefðu beitt norðurkór­esk­um her­mönn­um í öfl­ugri sókn í Kúrsk á und­an­förn­um dög­um.

Norður-Kór­eu­menn fengu eld­flauga­varn­ar­kerfi frá Rúss­um í skipt­um fyr­ir her­menn í stríðinu gegn Úkraínu.

Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seti sagði í síðasta mánuði að 11.000 norðurkór­esk­ir her­menn væru í Vest­ur-Kúrsk-héraði en Rúss­land og Norður-Kórea hafa eflt til muna hernaðartengsl sín eft­ir inn­rás Rússa í Úkraínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert