Flugvél norska flugfélagsins Norwegian fór út af flugbrautinni á Molde-flugvellinum í Noregi í kvöld er hún lenti. Yfir 170 farþegar voru um borð en engar tilkynningar hafa borist um að neinn hafi slasast.
Norska ríkisútvarpið (NRK) greinir frá.
Viðbragðsaðilar voru kallaðir til eftir að þeir fengu tilkynningu um að farþegaþota hefði farið út af flugbrautinni.
„Við höfum lokið rýmingu [flugvélarinnar] og höfum komið farþegunum fyrir inni á flugvellinum þar en lögregla og krísuteymi, sem voru kölluð út, hlúir að þeim,“ sagði lögreglufulltrúinn Sindre Molnes í samtali við NRK.
Hann segir að engar tilkynningar hafi borist um meiðsli þó farþegar séu slegnir. 171 farþegi var um borð í vélinni.
„Ég fann fyrir venjulegri lendingu flugvélarinnar en svo allt í einu byrjaði hún að renna til hliðar. Svo byrjuðu allir að líta út um gluggana og ég tók eftir því að við vorum ekki lengur á flugbrautinni,“ sagði Asbjørn Mittet, einn af farþegunum, í samtali við NRK.
#Breaking #Ongoing a Norwegian Air B-737 had overran the runway on landing in Molde (Norway). No injuries among the 171 aboard, which evacuated via slides. According to AV Herald, jet stopped 500 ft from the end of the runway, and 50 ft from nearby sea.
— Air Safety #OTD by Francisco Cunha (@OnDisasters) December 19, 2024
Airline reported bad… pic.twitter.com/vrjYK515vx
Norwegian segir að veðurskilyrði séu talin ástæða þess að vélin fór út af flugbrautinni.
„Vindhviður og hálka á flugbraut þegar vélin fór út af flugbrautinni á flugvellinum í Molde,“ sagði Eline Hyggen Skari, upplýsingafulltrúi Norwegian.
„Eftir lendingu kom vindhviða og flugbrautin var hál,“ sagði Eline.