Norðurkóreskir hermenn drepnir í stríði Rússa

Norður-Kórea og Rússland hafa styrkt hertengsl sín eftir að Rússland …
Norður-Kórea og Rússland hafa styrkt hertengsl sín eftir að Rússland réðist inn í Úkraínu í febrúar 2022. AFP/KCNA VIA KNS

Yfir þúsund norðurkór­esk­ir her­menn hafa verið drepn­ir eða særðir í stríði Rúss­lands og Úkraínu, að því er hers­höfðingj­ar Suður-Kór­eu segja.

Þá hafa að minnsta kosti hundrað norðurkór­esk­ir her­menn verið drepn­ir síðan í byrj­un des­em­ber.

Þúsund­ir norðurkór­eskra her­manna hafa verið send­ir til að styrkja rúss­neska her­inn, þar með talið til landa­mæra Kúrsk-héraðsins, landsvæði sem her­sveit­ir Úkraínu her­tóku fyrr á þessu ári.

Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá hers­höfðingj­um Suður-Kór­eu er stefn­an að senda fleiri norðurkór­eska her­menn til að aðstoða stríðsátök Rússa.

„Gagn­kvæm­ur ávinn­ing­ur“

Þá lít­ur út fyr­ir að Norður-Kórea sé að „fram­leiða og út­vega sjálf­eyðandi dróna“ til Rúss­lands til að aðstoða Moskvu enn frek­ar í bar­átt­unni gegn Úkraínu.

Sam­kvæmt her Suður-Kór­eu stefn­ir Norður-Kórea að því að nú­tíma­væða hefðbundna hernaðargetu sína, á grund­velli bar­dagareynslu í stríðinu milli Rúss­lands og Úkraínu.

„Þetta gæti leitt til auk­inn­ar hernaðarógn­ar norðurs­ins í garð okk­ar,“ sögðu þeir.

Fregn­ir þess­ar sam­ræm­ast skýrslu alþjóðlegu leyniþjón­ust­unn­ar (e. Nati­onal In­telli­gence Service), sem sagði lík­legt að Rúss­land byði „gagn­kvæm­an ávinn­ing“ fyr­ir hernaðarfram­lög Norður-Kór­eu, þar á meðal „nú­tíma­væðingu hefðbund­inna vopna Norður-Kór­eu“.

Styrkt tengsl

Norður-Kórea og Rúss­land hafa styrkt hertengsl sín eft­ir að Rúss­land réðist inn í Úkraínu í fe­brú­ar 2022 en varn­ar­samn­ing­ur milli höfuðborga land­anna, sem und­ir­ritaður var í júní, tók gildi í þess­um mánuði.

Norður-Kórea sagði sam­eig­in­lega yf­ir­lýs­ingu Banda­ríkj­anna og banda­manna þeirra „kæru­lausa ögr­un“, en þar er stuðning­ur Norður-Kór­eu við stríð Rússa gagn­rýnd­ur, þar á meðal send­ing her­manna.

Suður-Kórea og Úkraína til­kynntu í síðasta mánuði að lönd­in myndu auka ör­ygg­is­sam­starf sitt til að bregðast við ógn­inni sem staf­ar af send­ingu norðurkór­eskra her­manna. Ekki var minnst á hugs­an­leg­ar vopna­send­ing­ar frá Seúl til Kænug­arðs.

Yoon Suk Yeol, ákærður for­seti Suður-Kór­eu, sagði í nóv­em­ber að Seúl hefði „ekki úti­lokað mögu­leik­ann á að út­vega vopn“ til Úkraínu, sem myndi marka um­tals­verða breyt­ingu á langvar­andi stefnu þess að úti­loka sölu vopna til landa í virk­um átök­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert