Viðvera norðurkóreskra hermanna í Kúrsk-héraði hefur enn sem komið er ekki haft mikil áhrif á gang bardaganna í héraðinu, að sögn embættismanns innan úkraínsku leyniþjónustunnar.
Úkraínumenn telja að 12 þúsund norðurkóreskir hermenn, þar á meðal um 500 liðsforingjar og þrír hershöfðingjar, séu staddir við landamæri héraðsins sem hersveitir Úkraínu hertóku fyrr á þessu ári.
Hvorki Rússar né Norðurkóreumenn hafa nokkurn tímann staðfest þátttöku norðurkóreska hersins í hernaðarátökum svæðisins.
„Þátttaka Norður-Kóreumanna í bardögum hefur ekki haft teljandi áhrif á ástandið. Þetta er ekki þýðingarmikill fjöldi hermanna,“ sagði Jevgín Jerín, talsmaður úkraínsku leyniþjónustunnar, við AFP-fréttaveituna.
Hann sagði að norðurkóreskir hermenn hefðu litla reynslu af nútímahernaði, sérstaklega með drónum, og notuðu „frumstæðar aðferðir, satt best að segja, sem eiga við hernað seinni heimstyrjaldarinnar“.
„En þeir eru þó að læra. Og við getum ekki vanmetið óvininn. Og við getum séð að þeir eru nú þegar að taka tillit til sumra hluta í hernaði sínum,“ bætti Jerín við.
Í gær sagði Volodimír Selenskí Úkraínuforseti að nærri þrjú þúsund norðurkóreskir hermenn hefðu „særst eða verið drepnir“ hingað til.
Suður-Kórea greindi frá því í gær að um 1.100 norðurkóreskir hermenn væru særðir og stefna Norður-Kóreumenn á að senda fleiri hermenn til að aðstoða stríðsátök Rússa.