Farþegar heyrðu hvelli áður en vélin hrapaði

Tveir farþegar segja við Reuters að þeir hefðu heyrt háværan …
Tveir farþegar segja við Reuters að þeir hefðu heyrt háværan hvell áður en vélinn hrapaði. Flugþjónn segist hafa heyrt þrjá hvelli. AFP

Tveir farþegar og einn flugþjónn sem voru um borð í farþega­flug­vélinni sem brot­lenti í Kasakstan á leið frá Aser­baíjs­an til Rúss­lands á miðviku­dag segjast hafa heyrt háan hvell áður en vélin hrapaði.

Flug­vél á veg­um flug­fé­lags Aser­baís­j­an hrapaði í vest­ur­hluta Kasakst­an á miðvikudag með þeim af­leiðing­um að 38 af 67 sem um borð voru í vél­inni fór­ust.

Rann­sókn á or­sök­um flug­slyss­ins er þegar haf­in en sum­ir flug- og her­sér­fræðing­ar segja að flug­vél­in gæti hafa verið skot­in fyr­ir slysni af rúss­nesk­um loft­varn­ar­kerf­um þar sem hún var á flugi á svæði þar sem til­kynnt hafði verið um úkraínska dróna.

Einn, tveir eða þrír hvellir? 

Fólk sem lifði af flugslysið lýsir því að hafa heyrt hvell, eða hvelli, áður en vélin hrapaði.

„Eftir hvellinn... þá hélt ég að flugvélin væri að detta í sundur,“ segir Subhonkul Rakhimov, einn af farþegunum, við Reuters. 

„Það var augljóst að flugvélin hafi verðir sköðuð á einhvern hátt,“ bætti hann við. „Það var eins og hún væri ölvuð – ekki lengur sama vélin.“

Reuters hefur eftir Vöfu Shabanovu, öðrum farþega, að hún hafi heyrt tvo hvelli. Báðir farþegar segja að útlit hafi verið fyrir að súrefnisgæðin í vélini hafi dregist saman eftir hvellinn.

Flugþjónninn Zulfugar Asadov segir að flugvélinni hafi verið neitað að lenda í Grosní vegna þoku og því hafi flugþjónar ákveðið að taka auka hring, og þá hafi þrír hvellir ómað um vélina.

Reuters hefur eftir fjórum heimildamönnum sínum að vélin hafi verið skotin niður fyrir slysni af Rússum. Rúss­nesk stjórn­völd vilja að rann­sókn fari fram áður en menn dragi ályktanir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka