Íhuga blátt bann við skotvopnaeign

Milokjo Spajic, forsætisráðherra Svartfjallalands.
Milokjo Spajic, forsætisráðherra Svartfjallalands. AFP

Milokjo Spajic, forsætisráðherra Svartfjallalands, segir að stjórnvöld séu að íhuga að setja blátt bann við skotvopnaeign í landinu eftir að byssumaður felldi 12 manneskjur í borginni Cetinje á miðvikudag.

Fjórir til viðbótar særðust í árásinni.

Er þetta í annað sinn á þremur árum sem byssumaður myrðir fjölda manns. Árið 2022 voru 10 drepnir í skotárás Cetinje þar sem skotmaðurinn féll eftir að hafa skipst á skotum við lögreglu.

Sótti skotvopn eftir átök 

Skotmaðurinn í árásinni á miðvikudag, Aco Martinović, féll fyrir eigin hendi eftir að hafa upphaflega flúið bar þar sem hann hóf skothríðina.

Kveikjan að morðunum var sú að Martinović lenti í átökum á barnum og fór þaðan heim til sín og sótti skotvopn. Þegar hann kom að nýju á barinn lét hann skothríð dynja á gestum staðarins áður en hann yfirgaf hann og felldi fleiri sem urðu í vegi hans.

Skotvopnaeign er sögð almenn í Svartfjallalandi en þar búa um 620 þúsund manns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert