Íslandsvinur lést í árásinni í New Orleans

Breskur leiðsögumaður sem starfaði nokkur sumur hér á landi er …
Breskur leiðsögumaður sem starfaði nokkur sumur hér á landi er meðal þeirra látnu í New Orleans. AFP

Ung­ur Breti sem starfaði sem leiðsögumaður hér á landi í nokk­ur sum­ur var meðal þeirra sem lét­ust í hryðju­verka­árás­inni í New Or­le­ans á gaml­árs­kvöld.

Frá því grein­ir Jó­hann Gunn­ar Arn­ars­son, veit­inga­stjóri í veiðihús­inu Foss­gerði við Selá, einnig þekkt­ur sem Jói bötler.

„Þetta er ung­ur maður sem var að vinna með okk­ur. Hann varð und­ir bíln­um og dó í þess­ari árás,“ seg­ir Jó­hann.

Banda­ríkjamaður­inn Shamsud-Din Jabb­ar varð alls fimmtán manns að bana og særði tutt­ugu er hann keyrði inn í mann­mergð á Bour­bon-stræti á ný­ársnótt þar sem ára­móta­fögnuður fór fram.

Kveðst Jó­hann ekki vilja nafn­greina mann­inn að svo stöddu þar sem fjöl­skylda hans hafi hvorki tjáð sig um málið né hafi nafn hans verið birt í fjöl­miðlum enn sem komið er.

Hitt­ust síðast í sum­ar

Maður­inn var bú­sett­ur í Bretlandi en kom iðulega hingað til lands til að sinna leiðsögu­mennsku. Jó­hann seg­ir að all­ir sem hafi fengið kynni af mann­in­um við Selá og víðar séu harmi slegn­ir yfir fregn­un­um.

„Þetta er rosa­lega slá­andi þegar þetta er komið svona ná­lægt manni. Þetta eru ekki bara töl­ur á blaði.“

Jóhann kveðst síðast hafa hitt manninn í veiði við Selá …
Jó­hann kveðst síðast hafa hitt mann­inn í veiði við Selá í sum­ar. mbl.is/​Ein­ar Falur Ing­ólfs­son

Síðasta sum­ar hafi hann komið til Íslands til þess að veiða en ekki til að starfa og seg­ir Jó­hann það hafa verið mikla fagnaðar­fundi.

„Það var dá­sam­legt að hitta hann. Hann var al­veg dá­sam­leg­ur ung­ur maður. Það bara gerði sér nátt­úru­lega eng­inn grein fyr­ir því hversu stutt hann ætti eft­ir.“

Ólíðandi og óskilj­an­legt

Hann hafi frétt af and­láti hans í gegn­um ann­an koll­ega sem er bú­sett­ur í Banda­ríkj­un­um. Bret­inn ungi hafi verið stadd­ur þar í fríi og var stadd­ur í Bour­bon-stræti til að fagna nýja ár­inu sem gekk í garð.

Seg­ir Jó­hann það al­gjör­lega ólíðandi og óskilj­an­legt að at­b­urður sem þessi geti átt sér stað og að fólk sem sé úti að skemmta sér eða sé á ferðalagi eigi á hættu að verða fyr­ir árás sem þess­ari.

„Við vor­um með fimm ára barna­barn hjá okk­ur í gær og frétt­irn­ar voru í gangi og hann spurði hvers vegna ein­hver hefði verið að keyra á svona marga til þess að drepa þá. Svo var næsta frétt um stungu­árás,“ seg­ir Jó­hann.

„Hvað get­ur maður sagt? Hvernig get­ur maður út­skýrt þetta ástand? Það er ekki auðvelt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert