Úkraínuher gerði gagnárás

Gagnárás Úkraínumanna á síðasta ári var ein sú umfangsmesta innan …
Gagnárás Úkraínumanna á síðasta ári var ein sú umfangsmesta innan landamæra Rússlands frá upphafi stríðsins. AFP

Úkraínuher hóf aðra gagnárás í Kúrsk-héraðinu í Rússlandi fyrr í dag. Í ágúst á síðasta ári gerði herinn gagnárás á svæðinu.

Um klukkan 9 að morgni í Rússlandi hóf herinn gagnárásina, að því er kemur fram í yfirlýsingu rússneska varnarmálaráðuneytisins.

Samkvæmt yfirlýsingunni notuðu Úkraínumenn tvo skriðdreka, ökutæki til að fjarlægja jarðsprengjur og tólf vopnaða herbíla í gagnárásinni.

Yfirvöld í Úkraínu hafa ekki tjáð sig sérstaklega um gagnárásina í dag.

Aðgerðir Úkraínumanna í ágúst voru með umfangsmestu aðgerðum Úkraínumanna innan landamæra Rússlands frá því Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert