Fyrsta dauðsfallið tengt fuglaflensu staðfest vestanhafs

Heilbrigðisyfirvöld í Louisiana greina frá dauðsfallinu.
Heilbrigðisyfirvöld í Louisiana greina frá dauðsfallinu. AFP

Til­kynnt hef­ur verið um fyrsta dauðsfall mann­eskju sem teng­ist fuglaflensu í Banda­ríkj­un­um.

Heil­brigðis­yf­ir­völd í Louisi­ana greina frá dauðsfall­inu með yf­ir­lýs­ingu en þar seg­ir að ein­stak­ling­ur­inn hafi verið 65 ára gam­all sjúk­ling­ur sem hafi einnig glímt við önn­ur veik­indi.

Lýðheilsu­hætta enn lít­il

Um er að ræða sama sjúk­ling og greint var frá að væri al­var­lega veik­ur stuttu fyr­ir jól.

Sá var lagður inn á spít­ala vegna al­var­legra veik­inda í önd­un­ar­fær­um sem tengd­ust H5N1-sýk­ingu og var það fyrsta al­var­lega til­felli sýk­ing­ar­inn­ar í Banda­ríkj­un­um.

Seg­ir einnig í yf­ir­lýs­ing­unni að þrátt fyr­ir dauðsfallið sé lýðheilsu­hætta vegna fuglaflens­unn­ar enn lít­il.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert