Sóttu akkeri sem tengist skuggaflota Rússa

Olíuflutningaskipið Eagle S liggur nú við akkeri skammt frá Helsinki.
Olíuflutningaskipið Eagle S liggur nú við akkeri skammt frá Helsinki. AFP

Sænski sjóherinn greindi frá því í dag að honum hefði tekist að sækja akkeri tankskips í Eystrasaltinu, sem talið er tengjast svokölluðum skuggaflota Rússa. Grunur leikur á að flotinn beri ábyrgð á því að fjórir sæstrengir og einn rafstrengur skemmdust í desember.

Sænsk yfirvöld sendu björgunarkafbát á vettvang til að aðstoða finnsk yfirvöld við rannsókn málsins í liðinni viku.

„HMS Belos hefur fundið og sótt akkerið og afhent það finnskum yfirvöldum,“ segir Jimmie Adamsson, talsmaður sænska sjóhersins, í samtali við AFP-fréttaveituna.

Talið er að skipið Eagle S, sem siglir undir fána Cook-eyja, hafi skemmt EstLink 2-rafstrenginn, sem liggur á milli Finnlands og Eistlands, í Eystrasaltinu á jóladag.

Löng slóð eftir akkerið

Finnska lögreglan greindi frá því 29. desember að hún hefði fundið slóð eftir akkerið á sjávarbotninum, en slóðin teygði sig tugi kílómetra.

Finnska orkuveitan Fingrid óskaði eftir því við yfirvöld að þau myndu leggja hald á skipið vegna málsins.

AFP

Finnsk yfirvöld hafa meinað átta skipverjum að yfirgefa finnskt yfirráðasvæði. Þá telja þau að skipið, sem er nú statt austur af höfuðborginni Helsinki, sé hluti af skuggaflota Rússlands. Um er að ræða skip sem flytja rússneska hráolíu og steinolíu þrátt fyrir að viðskiptabann hafi verið lagt á þessar vörur í tengslum við innrásarstríð Rússa í Úkraínu. 

Finnska fjarskiptafyrirtækið Elisa sagði í gær að búið væri að laga tvo strengi sem hefðu skemmst í vetur. Aftur á móti er ekki búið að gera við EstLink 2-strenginn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert