Slökkviliðið í Los Angeles í Kaliforníu segir að það sé engin leið að ná tökum á miklum gróðureldum sem þar loga og hafa valdið miklum usla.
Fram kemur í umfjöllun BBC að ríflega 49 þúsund manns hafi neyðst til að yfirgefa heimili sín í borginni á meðan um 1.400 slökkviliðsmenn berjast við logana.
Eldur kviknaði í bakgarði íbúðarhúsnæðis í Palisades-hverfi Los Angeles í gærmorgun og breiddi úr sér á ógnarhraða vegna mikils vinds og þurrks í borginni.
Náðu logar eldsins að breiða úr sér úr 20 hekturum upp í 200 hektara á aðeins 20 mínútum og hafa nú teygt úr sér yfir 2.900 hektara, sem jafngildir um 29 ferkílómetrum.
Tveir eldar til viðbótar kviknuðu í kjölfarið í San Fernando-dal og Altadena og til að bæta gráu ofan á svart kviknaði sá fjórði í morgun í Riverside-sýslu.
Yfirvöld segja „engan möguleika“ á að ná tökum á eldunum þar sem hnjúkaþeyr, oft kenndur við Santa Ana í Kaliforníu, hefur gert ástandið illt vera. Hnjúkaþeyr er hlýr og þurr vindur sem blæs af fjöllum og getur verið afar hvass og hviðugjarn.
Að sögn slökkviliðsins í Los Angeles fer vindhraði einungis á versnandi veg og ástandið því enn „stórhættulegt.“