Flugritar Jeju-Air-flugvélarinnar sem brotlenti í Suður-Kóreu 29. desember hættu að virka fjórum mínútum fyrir slysið, að sögn samgönguyfirvalda þar í landi.
Vonast var til að svörtu kassarnir svokölluðu gæfu vísbendingar um hvað hefði orðið til þess að vélin brotlenti með 181 mann um borð. Einungis tveir slysið lifðu af.
Flugslysið er það mannskæðasta sem orðið hefur á suðurkóreskri grundu.
„Greiningin leiddi í ljós að bæði CVR- og FDR-gögnin voru ekki skráð fjórum mínútum áður en vélin lenti í árekstrinum,“ segir í yfirlýsingu samgönguráðuneytis Suður-Kóreu.
Yfirvöld áætla að rannsaka frekar hvers vegna þetta hafi verið raunin.