Austurrískri konu rænt í Níger

Konunni var rænt í gær í borginni Agadez í Níger.
Konunni var rænt í gær í borginni Agadez í Níger. AFP

Austurrískri konu var rænt af mannræningjum í borginni Agadez í Níger í gærkvöldi.

Utanríkisráðuneyti Austurríkis staðfestir þetta við AFP-fréttaveituna.

Air-Info, fréttamiðill í Níger, segir að konan heiti Eva Gretzmacher. Hún sé 73 ára gömul og hafi búið í Agadez í 28 ár.

Samkvæmt upplýsingum miðilsins komu mannræningjarnir vopnaðir heim til Gretzmacher í gærkvöldi og neyddu vörð hennar til þess að opna inn til hennar.

Evrópu- og alþjóðamálaráðuneytið staðfestir mannránið

Yfirvöld Austurríkis greindu frá því fyrr í dag að sendiráð ríkisins gagnvart Níger hefði verið upplýst um hugsanlegt mannrán, en ráðuneytið hefur nú staðfest mannránið.

Þá er sendiráðið komið í samband við samstarfslönd og sendinefnd ESB sem og svæðisyfirvöld á vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert